Um okkur
Að vera fyrsta fyrirtækið á Íslandi til að bjóða almenningi og fagfjárfestum upp á að fjárfesta með reglubundnum sparnaði í gulli og öðrum eðalmálmum er bæði mjög sérstakt, í ljósi þess að Ísland er sennilega síðasta landið í heiminum sem telst sem nýmarkaður í eðalmálmum, og mikill heiður.
Við höfum því reynt að nálgast markaðinn með mikilli nærgætni. Við gerum okkur grein fyrir því að þó að sjálfsögðu allir viti hvað gull er þá eiga Íslendingar enn margt ólært hvað varðar fjárfestingar í gulli og öðrum eðalmálmum. Því ákváðum við að leggja gríðarlega áherslu á fræðslu.
Við höfum stofnað Gullakademíu sem er aðgengileg öllum, ókeypis hér á vefsíðunni okkar.
Við munum senda reglulega frá okkur fréttir um hvað er að gerast á gullmörkuðum og um annað sem snertir eðalmálma og gæti verið til fróðleiks og hagsbóta fyrir viðskiptavini okkar og almenning.
Við höfum leitað eftir því „besta“ sem við teljum vera völ á fyrir íslenskan markað og fyrir íslenska neytendur og fjárfesta.
Þýskaland er stærsti gullmarkaður Evrópu – þar eru yfir 100 fyrirtæki sem bjóða upp á reglubundinn sparnað í gulli. Við ákváðum að hefja samstarf við fyrirtæki sem er talið fremst á sínu sviði á þeim markaði; fyrirtæki sem starfar í 140 löndum um allan heim, fyrirtæki sem fær viðurkenningar á hverju ári fyrir frábæra þjónustu, góð verð og er talið bjóða upp á „bestu“ sparnaðarsamninga Þýskalands.
Við ákváðum líka að taka upp staðla við sölu og ráðgjöf sem er talið til fyrirmyndar i greininni.
Þessir staðlar eru verk og vinna Alþjóða gullráðsins (World Gold Counsil) sem eru samtök sem eru leiðandi í gulli í heiminum.
Eigendur
AU Marketing and Service GMbH
Frá stofnun hefur Auvesta Edelmetalle AG verið leiðandi í viðskiptum með eðalmálma í Þýskalandi og býður heildarlausnir um allan heim fyrir einstaklinga og fyrirtæki sem vilja fjárfesta með reglubundnum hætti í gulli og öðrum eðalmálmum.
Markaðsstarf félagsins um allan heim er í höndum AU Marketing and Service GMbH í Þýskalandi sem er einn af aðaleigendum Gullmarkaðarins/Arcarius ehf. Fyrirtækið er undir stjórn Hr. Zhenwei Wang sem hefur áratuga reynslu af því að starfa á gullmörkuðum um allan heim.
Spóinn fjárfestingafélag ehf. er 15 ára gamalt félag í eigu Halldórs Björns Baldurssonar og fjölskyldu. Halldór hefur starfað á fjármálasviði í yfir 30 ár, síðustu 25 árin að mestu erlendis. Halldór hefur unnið að verkefnum um allan heim
en þó mest í Evrópu, m.a. verkefni á trygginga- og lífeyrissviði, í fjárfestingabankastarfsemi og fyrirtækjaráðgjöf.
Halldór hefur komið að sameiningum, yfirtökum og sölu á um 40 fyrirtækjum víða um Evrópu í mörgum ólíkum greinum.
Hann hefur fylgst með gullmörkuðum í allmörg ár og þegar tækifærið kom upp, að vinna með þessum frábæru samstarfsaðilum að kynna þessa tegund fjárfestinga og sparnaðar fyrir Íslendingum, þá var ekki hægt að sleppa því.
Ráðgjafar

Halldór Björn Baldursson, framkvæmdastjóri, stofnandi og eigandi.
Netfang: hbb@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 778 5020
Viðskiptafræðingur, Háskóli Íslands
35 ára
starfsreynsla af verkefnum á sviði fjármála, víðsvegar um heiminn.
Hann hefur fylgst með gullmörkuðum í mörg ár og fyrst að tækifærið kom upp, að vinna með AUVESTA EDELMETALLE AG, við að kynna þessa tegund fjárfestinga og sparnaðar fyrir Íslendingum, þá var ekki hægt að sleppa því.
„Hærri ávöxtun – minni áhætta“

Hörður Pálmarsson, ráðgjafi
Netfang: hp@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 825 0012
26
ára starfsreynsla á fjármálamarkaði. Viðskiptafræðingur frá Kaliforníu, Bandaríkjunum.
„Öryggi gulls í flóknum heimi fjárfestinga ætti að koma á ró í huga fólks, stöðugleikinn á gulli hefur margsannað sig.“

Ása Oddsdóttir, ráðgjafi
Netfang: ao@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 620 8584
40 ára jákvæð starfsreynsla á fjármálamarkaði, aðallega við sölu og ráðgjöf á sviði banka og söfnunartrygginga.
Markmið mitt er ávallt að gæta að hagsmunum viðskiptavina minna til að tryggja þeim fjárhagslega áhyggjulaust ævikvöld.
,,Gull er öruggt skjól á óvissutímum - eins og í dag."

Steindór Karvelsson, ráðgjafi
Netfang: steindor@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 825 0005
32 ára starfsreynsla á fjármálamarkaði, aðallega við sölu og ráðgjöf á sviði vátrygginga og söfnunartrygginga.
„Markmið mitt er fagleg vinnubrögð og að viðskiptavinir geti tekið upplýstar ákvarðanir.“
,,Gulleign á að nema 10–20% af hreinum eignum fólks – sérstaklega á þessum tímum."

Sigurjón „Sjonni“ Kristjánsson, ráðgjafi
Netfang: sjonni@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 892 7007
28 ára starfsreynsla á fjármálamarkaði. Aðallega á sviði ráðgjafar um lífeyrissparnað, þar sem markmiðið er ávallt að mæta þörfum viðskiptavina, hámarka ávinning þeirra og tryggja örugga framtíð.
„Allt gull sem hefur verið grafið upp, í yfir 6000 ára sögu mannkyns, passar í tening sem er um 22 metrar á hverri hlið – gull er eilíft og eyðist ekki.“

Baldur Hans Úlfarsson, ráðgjafi
Netfang: bhu@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 772 2256
37 ára starfsreynsla á fjármálamarkaði á breiðu sviði.
„Markmið mitt er að veita góða og upplýsta þjónustu á sviði eðalmálma.
Það er aðeins gull sem glóir.“

Þorgerður Halldórsdóttir, skrifstofustjóri.
Framkvæmdastjóri og eigandi að Gullmarkaðurinn verslun ehf.
Netfang: th@gullmarkadurinn.is
Sími: +354 772 2991
20 ára reynsla af vinnu með fólki og börnum ásamt því að hafa unnið í sölu- og fjármálastarfsemi.
Nam lögfræði og kennslufræði fyrir grunnskóla við Háskóla Íslands.
„Ég hef sótt námskeið og fræðslu í hugrænni atferlismeðferð, tilfinningum, félagsfærni og sjálfsmynd, til þess að auka þekkingu mína á að koma til móts við fjölbreyttan hóp af einstaklingum.“
Þjónusta við viðskiptavini, m.a. aðstoð við að setja upp MÍNAR SÍÐUR hjá Auvesta Edelmetalle AG og rekstur vefverslunar.
„Gull er peningur, allt annað eru skuldir.“ – J.P. Morgan
Stjórn

Lýður Árni Friðjónsson
Stjórnarformaður
Netfang: larnif@gmail.com
Sími: +371 26455889
Lauk viðskiptafræðiprófi á fjármálasviði í Háskóla Íslands 1980 og síðar framhaldsnámi MBA í IMD, Lausanne, Sviss.
Lengi framkvæmdastjóri Verksmiðjunnar Vífilfells ehf. og síðar hjá The Coca-Cola Company í Noregi og víðar um Evrópu.
Lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
Margvísleg stjórnarstörf hjá TCCC og síðar FMCG tengd drykkjarvöruframleiðslu og matvælaiðnaði.
Stjórnandi og ráðgjafi hjá einum stærsta heildsala Eystrasaltsríkjanna, Karsten.
Starfar við eigin fjárfestingar, margvísleg
stjórnarstörf og ráðgjöf ásamt eigin rekstri.

Markús Örn Þórarinsson
Stjórnarmaður
Netfang: markus@martex.is
Sími: + 354 6973606
Cand oecon í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1987.
40 ára starfsferill hjá 66 North, allt frá sumarstarfi sem sendill til stjórnanda á sviði fjármála. Framkvæmdastjóri 66 North Baltic 2002–2005. Einn af stofnendum og framkvæmdastjóri Hlunns ehf. fjárfestingafélagsins frá 2005 og framkvæmdastjóri Martex-Batik ehf. frá 2007. Stjórnarformaður og 25% hluthafi í Vilkma AB frá 2015.

Hildigunnur Halldórsdóttir
Stjórnarmaður
Skrifstofa
Upplýsingar um vörur og þjónustu:
upplysingar@gullmarkadurinn.is
Upplýsingar um greiðslur:
Kvartanir og ábendingar:
Gullmarkaðurinn verslun ehf.
Þorgerður Halldórsdóttir
Framkvæmdastjóri og eigandi
STJÓRN:
Halldór Björn Baldursson
Stjórnarformaður og eigandi
Lýður Árni Friðjónsson
Stjórnarmaður
Markús Örn Þórarinsson
Stjórnarmaður





